Lækjarskóli

Kannanir

Reglur

Starfsfólk

Íþróttir

Slóðir

Myndir

Leikir o.fl.





Vefari




Íþróttafréttir Lækjarskóla ALLIR á listann!                                                                   - Smellið til að skrá á netfangalista íþróttafrétta Lækjarskóla         Íþróttafréttir og tilkynningar


Siglingar

Miðvikudaginn 4. júní 2003 býður Siglingaklúbburinn Þytur í Hafnarfirði nemendum í 8.-9. bekk Lækjarskóla að koma í heimsókn. Markmiðið er að nemendur kynnist hvernig er að róa árabátum og hvernig er að sigla á seglum. Ef veður leyfir fer hópur á árabáta á meðan annar fer í siglingu á skútum með reyndum skipstjórum. Nemendur róa, stýra, stilla segl og skoða sig um. Nemendur læra um hættur á sjó, fyllsta öryggis er gætt, allir fá björgunarvesti. Gleymið ekki sokkum, aukaskóm eða stígvélum. Gott er að hafa alltaf með í siglingar aukaföt því maður gæti blotnað meira :-). Einna best er að vera í ullarsokkum og ull næst húðinni en að vísu er sjórinn óvenju "heitur" í ár. Gamlir strigaskór eru betri en stígvél. Heitar sturtur eru í klúbbhúsi Þyts og fyllsta öryggis gætt. Siglingaklúbburinn vinnur eftir öryggisstöðlum Siglingastofnunnar Íslands, gæslubátar eru á staðnum og á þeim og stærstu skútunum starfsfólk með réttindi. Siglingasvæðið er innan hafnarinnar og sést vel til bátanna frá Strandgötunni. Hugsanlega koma reyndir siglarar í heimsókn og sýna listir sínar. Þytur hefur stígið glæsileg skref í eflingu íþrótta enda hlotið ÍSÍ bikarinn sem veittur er íþróttafélagi fyrir gott uppbyggingarstarf. Það er von okkar að ferðin verði nemendum til gagns og gamans. Hér til hliðar má sjá kort frá Landmat, mynd af klúbbhúsi Þyts og skútum sem siglt verður á ef veður leyfir.

Nemendur og kennarar sem fá að fara í ár eru:
- 9.X klukkan 09:00
- 9.Y klukkan 10:30
- 8.Þ klukkan 13:00
- 8.Æ klukkan 14.30

Mæta á í klúbbhúsið á ofangreindum tímum. Stundvísi er mikilvæg því farið er yfir reglur o.fl. á staðnum.

Til að læra meira um siglingar er tilvalið að heimsækja vefi Siglingasambands Íslands og Siglingaklúbbsins Þyts. Þytur er með opna aðstoðu, námskeið og þjálfun. Klúbburinn steig frumkvæði á Íslandi með heilsársplani í siglingaþjálfun. Í hópnum er m.a. Hafsteinn Ægir Geirsson keppandi Íslands á Ólympíuleikunum í siglingum árið 2000. Fjórir keppendur frá Þyt eru á leið á Smáþjóðaleika Evrópu sem fara fram á þeim tíma sem Lækjarskóli kemur í kynninguna, einn keppir á Optimist kænu og þrír á Laser kænum, þar af er einn fyrrum nemandi Lækjarskóla. Fjórir kjölbátasiglarar úr Þyt taka nokkrum dögum áður þátt í móti í Frakklandi, auk þessa eru mót hér heima og fullt af skemmtilegum námskeiðum hjá klúbbnum. Til hliðar má sjá myndir frá heimsókn Lækjarskóla í fyrra, smella má á þær til að fara á myndasíðu og sjá stærri myndir. (Arnþór skráði 20. maí '03).

Útitímabil

Útitímabil verður í íþróttum í maí. Munið góða skó, handklæði og úti íþróttaföt. Viðfangsefni: Hlaupa þrjá skólahringi, svo má velja fótbolta, handbolta, körfubolta. Leiktæki - rólur, kastali, snú / snú, sippa o.fl. Leikir - París, Hlaup í skarðið, Eina krónu, Skotbolta, Verpa eggjum o.fl. (Arnþór skráði 28. apríl '03).

Íþróttir 8. – 10. bekk

Sjúkrapróf í íþróttum hjá 8. - 10. bekk (Euro fit með píp testi) verður 1. miðvikudag eftir páska. (Arnþór skráði 8. apríl '03).

Prófæfingar ganga vel

Byrjað var að skrá árangur í síðustu viku og það sem af er hefur gengið mjög vel. (Arnþór skráði 24. mars '03).

Próf

Evrópsk könnun svokölluð Euro-fit er lögð fyrir alla nemendur skólans, undanfarið hafa nemendur verið að prófa sig á æfingunum. (Arnþór skráði 24. mars '03).

ÞAGNAR Brennó

Leikinn var "þagnar" brennó í dag sem kom aðdáunarverður út. Leikmenn sem sögðu orð fóru fram í smá stund og nemendum þótti þetta mjög skemmtilegt. (Arnþór skráði 26. febrúar '03).

Brennó

Brennibolti er í íþróttum hjá þeim sem ég kenni vikuna 24. - 28. febrúar. (Arnþór skráði 24. febrúar '03).

Hringur

Vinsæll áhaldahringur er í íþróttum í dag og verður næstu daga, þar sem krakkanir sveifla sér í köðlum af kistu, stökkva yfir hindranir, fara kollhnýs á dýnum o.fl. (Arnþór skráði 17. febrúar '03).

Viðtöl

Foreldraviðtöl eru í dag og komu nokkrir að spjalla í íþrótthúsinu en íþróttakennarar og sundkennari voru þar til viðtals. (Arnþór skráði 10. febrúar '03).

Fótbolti

Fótboltatímabilið hjá okkur er yfirleitt á vorin og haustin úti en af og til höfum við fótbolta í litla salnum okkar og í dag var fótbolti inni við góðar undirtektir. (Arnþór skráði 4. febrúar '03).

Handbolti

Landsliðið í handknattleik á HM hefur áhrif á handknattleiksáhugann, spilaður hefur verið handbolti við góðar undirtektir í skólaíþróttum í Lækjarskóla. (Arnþór skráði 4. febrúar '03).

Jan - 2003

Eldri fréttir 2002: Desember, október-september, maí-júní, apríl, mars og febrúar.

Eldri fréttir 2001


                                                    © Lækjarskóli 2003 (AR)













Fréttasíðan er reglulega uppfærð


Bátanaust Siglingaklúbbsins Þyts í Hafnarfirði þar á að mæta, smella má að myndina til að fara á heimsíðu Siglingaklúbbsins Þyts
Kort Landmat af Suðurbæ og smábátahöfninni í Hafnarfirði. Á kortinu má sjá hvar eigi að mæta, smella má að myndina til að fara á heimsíðu Siglingaklúbbsins Þyts.
Secret 26 kappsiglarar, smella má að myndina til að fara á heimsíðu Siglingaklúbbsins Þyts


Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra Smella má á myndina til að fara á myndasíðu heimsóknar Lækjarskóla í Þyt frá í fyrra





Íþróttir í Lækjarskóla, © myndir: AR








Fréttasíðan er reglulega uppfærð. © Myndir: AR








Íþróttir í Lækjarskóla, © myndir: AR